<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, maí 26, 2004

Sumar 



Nú er komið sumar og við viljum óska öllum gleðilegs sumar og þakka fyrir veturinn.

Í sumar verða starfrækt skátanámskeið og um þau koma nánari upplýsingar síðar.
Ef einhver hefur áhuga á að skrifa eitthvað skemmtilegt sem tengist skátastarfi inn á þessa síðu, þá endilega hafið samband við mig!


miðvikudagur, apríl 07, 2004

Ja, her sit eg a tolvuklosettinu a skatamoti i tyskalandi og vildi bara lata rett vita af mer. Vid hofum verdid her i godu yfirlaeti i ksastalanum Rieaneck, tar sem skatamotid Imwe er haldid. Maturinn er unadslegur, dagskrain storskemmtileg, og folkid frabaert!

Hlakka til ad sja alla tegar eg kem heim, skatakvedjur,
Inga Audbjörg

sunnudagur, mars 21, 2004

Myndir úr félagsútilegunni! 

Hérna getið þið skoðað myndir úr félagsútilegunni. Gjörið þið svo vel.

laugardagur, mars 20, 2004

Lumar þú á efni? 

Kæru skátar, ef þið lumið á einhverju efni sem á heima hér inná, endilega látið mig vita með því að senda mér tölvupóst eða bara tala við mig næst þegar að þið náið í skottið á mér.
Efni sem á heima hér getur verið hvað sem er, flokksöngurinn, stuttur pistill um síðustu ferð eða síðasta skátafund, fróðleikur um skátahreyfinguna sem þið hafið tekið saman, fréttir eða hvað eina. Endilega hafið samband:)

Félagsútilega Svana 


Félagsútilegunni lauk við skátakot í glampandi sólskini þar sem allir sungu saman Bræðralagssönginn, svolítið ánægðir með að vera að koma heim, svolítið leiðir yfir að útilegan sé búin, svolítið stirðir eftir langa rútuferð og sennilega mjög þreyttir eftir erfiða helgi. Var þó mál manna að útilegan hafi verið með þeim betri sem farið hafði verið í síðastliðin ár. Ég held að flestir geti sameinast um þá skoðan að staðurinn, Gufuskálar, hafi verið mjög góður. Aðstaðan var góð, kannski aðeins of góð ef eitthvað er, umhverfið skemmtilegt og veðrið hressandi, þó að það hefið verið örlítið kalt.
Í rútunni á leiðinni heim voru skátarnir beðnir um að svara spurningalista um útileguna, svo að foringjarnir fengju að sjá hvað hefði tekist vel en hvað illa. Flestir svöruðu þessu, að minnsta kosti þeir sem enn voru vakandi. Þar mátti greina hina mestu jákvæðni í garð útilegunnar í heild sinni, flestir ánægðir með matinn (þó að mikið væri kvartað yfir kaffitímaleysi) og dagsskráin að skapi flestra. Þannig að ég held að allir Svanir nær og fjær geti bara verið ansi ánægðir með þessa félagsútilegu og vona ég að hún efli samheldni og skátastarf það sem eftir er af starfsári.

Með skátakveðju
Inga Auðjörg

miðvikudagur, mars 10, 2004

Félagsútilega Svana 12-14. marz 

Núna um helgina ætlum við öll að fara í félagsútilegu á Gufuskálum. Þemað er Sjóræningjar og þess vegna eiga allir sem vetlingi geta valdið að mæta með lepp og í sjóræningjafötum! Gufuskálar er svæði á Snæfellsnesi sem Landsbjörg á og er með björgunnarskóla.
Allir fá nægann mat yfir helgina, en ættu auðvitað að koma saddir eftir kvöldmatinn í rútuna á föstudaginn. Mæting er klukkan 18:00 og rútan fer klukkan 18:30!
Ferðin kostar 5000 krónur og innifalið í því er allur matur, gisting og ferðir.

Nánari upplýsingar gefur Jóhanna í síma 8955612.

Svo að nú er bara að fara að týna til gamla leðurleppinn, pússa tréfótinn og finna páfagaukinn, því að tíminn líður hratt á gervihnattaöld. Já... og líka á tímum sjóræningjanna!

Sjáumst á föstudaginn í sjóræningja skapi!

Vigga vann Ædoll 

Það var hún Vigdís sem vann undankeppni Ædolls sem var haldin í Skátakoti síðastliðinn fimmtudag. Hún söng lagið Saving all my love for you sem Withney Houston gerði frægt hér um árið. Fregnir herma að hún ætli að halda sig við þetta lag í stóru söngkeppninni sem verður haldin 28. mars í Loftkastalanum. Þangað ætlum við að sjálfsögðu öll að skunda til að styðja hana Viggu og auðvitað skemmta okkur stórkostlega. Ef þið viljið lesa meira um Skátaædoll vil ég benda á Hraunbúasíðuna en þeir halda mótið og virðast ætla gera það stórvel!
Jæja, velkomin á þessa bráðabirgðasíðu Svana!